| Arna Dögg's profile"umhverfisskipulagsfræði...PhotosBlogLists | Help |
|
"umhverfisskipulagsfræðingur"April 07 Þá er komið að næsta frétta fluttningi um líf Örnu DaggarArna Dögg er við hesta heilsu og hlakkar til sumarsins.
Hún fékk aðgöngu í skólann í kaupmannahöfn og er nú að bisa við lokaverkefnis vinnu.
Hún á ennþá sama kæarastann og er yfir sig ástfangin í sambúð með honum á Vesterbro.
Arna Dögg eignaðist sinn fyrsta bróðurson sama dag og hún flutti til Danmerkur og er ekki hjá því komist að segja að hún hafi vægast sagt verið í uppnámi yfir þessum atburðum sem óneytanlega ráskust á.
Þá er komið að veðri
Útlit er fyrir erfiðis vinnu næstu vikur en birtir til er líða fer á sumarið, vænta má að kvessi til er nær dregur skilum en, snýst í hægari átt eftir skil. Úrkomulítið nema að ef til falls kemur. Hiti eftir stressi og skapi, heldur svalara í pásum en getur farið hlýnandi einkum norðantil (í heilakvelinu) við hugmyndavinnu og heilabrot.
Fréttalestri er lokið July 09 hversdagssælaJá það er orðið langt síðan ég lét vita af mér hérna á þessu bloggi.
Allavega nú er ég útskrifðuð með bs gráðu í umhverfisskipulagi.
Ég er að vinna hjá skipulags- og byggingasviðið Reykjavíkur og líkar það bara vel.
Ég sótti um landslagsarkitektinn í Köben og bíð eftir svari.
Ég fór á ættarmót um daginn og var valinn í ættarmótarnefnd, það þýðir að ég er víst að fara að halda ættarmót eftir um það bil 4 ár, djö... er marr orðinn gamall, valin í nefndir og solleis. ussss
Ég er búin að næla mér í kærasta sem ég er voða skotin í :)
Stefnan í sumar er að fara á línuskauta og í útilegur, ég er búin að fara í eina útilegur og ekkert á línuskauta.
Ég keypti mér 3 pör af skóm á útsölu í seinustu viku, elska skó útsölur þær ættu að vera oftar.
Jæja þá er fréttafluttningi um líf Örnu Daggar lokið
umsjón hafði Arna dögg Arnardóttir
fréttir verða næst sagðar þegar hentar. August 26 Takk fyrir að reykja!Í dag ráfaði ég um húsið í örvæntingu minni um að ég væri líklegast að missa af einhverju, eða að ég ætti að vera gera eitthvað en ég vissi bara ekki hvað.
Langt síðan ég hef getað notið þess að vera eyrðarlaus, hlegið með fjölskyldunni og látið gæludýrin vera megin dægradvölina yfir daginn.
Ég var svo önnum kafin við að gera ekki neitt að ég tók varla eftir deginum líða, nú er allt í einu nótt, og kominn hátta tími eftir því sem ég best veit.
Þetta er bara lognið á undan storminum, skólinn byrjar á mánudaginn.
Mér tókst samt að gera eitthvað markvert í dag, ég fór í krabbameins skoðun, sem maður á víst að gera á hverju ári en ég hef ekki farið síðan áður en ég útskrifaðist úr menntaskóla. Lengra síðan en tannlæknirinn.
Í þetta skiptið var þetta kvenkyns læknir, verð nú að segja að hún hafi verið mjúkhentari. Skiljanlegt hún ætti að þekkja þetta af eigin raun.
Hún skoðaði líka brjóstin á mér, sagði að ég væri með heilbrigð brjóst, afar stífan og þéttar vef, held alveg örugglega að það sé hrós :)
Svo bakaði ég líka spelt hálfmána sem voru ekki vondir, en ekki góðir heldur, svekkjandi þar sem ég er góður kokkur jafnvel þó ég segi sjálf frá.
Að lokum fór ég í bíó og sá Thank you for smoking, gaman, ekki sem verst
Góða nótt.
August 24 tannlæknirinnJá ég fór til tannlæknis áðan.
Hann byrjaði á því að segja "ég hef ekki séð þig í 4 ár" þungur á brún.
Ég skammaðist mín og sagði vandræðalega já, datt ekkert sniðugra í hug.
Svo kíkti hann uppí mig, tók mynd og sagði svo "það er allt stapílt"
Burstaði tennurnar eins og tannlæknum er einum lagið og sagði svo "ég hef ekki hreyft við tönnunum síðan '98, skulum ekkert vera að breyta því"
Þannig að samviskubit mitt á vanrækslu minni hvað varðar tannlækna heimsóknir var tilgangslaust.
Þegar ég borgaði og kvaddi sagði hann í gríni, sjáumst svo aftur eftir 4 ár. October 28 Vetrar veðurJæja ég er ekki nógu dugleg að blogga, ég skil ekkert í þessu.
En okey í dag er föstudagurinn 28.okt. sem ég var búin að hlakka svo mikið til, við stelpurnar í fjölskyldunni ákváðum að reyna að hittast og dagurinn í dag varð úr eftir miklar vangaveltur um það hvenær við allar kæmumst.
Ég var búin í skólanum um hádegi í dag i strunsaði beinustu leið heim í flýti bæði útaf kuldanbola sem virtist ætla að bíta nefið af mér en líka af því að ég ætlaði að undirbúa koma stúlknanna.
Þegar ég kom heim tók ég fram nóa kropp, marensbotn, kókosbollur, rjóma og poka af frosnum bláberjum. Þessu blandaði ég öllu saman í réttum hlutföllum og er búin að hlakka til að gæða mér á þessum kræsingum í allan dag.
Nú var að koma uppá daginn, þó það sé nú reyndar komið kvöld, eins og við reyndar höfðum óttast að veðrið er ekki uppá marga fiska og ekki ráðlegt að aka um vegi landsins, í svona fiskalausu veðri.
Svona getur maður nú verið vanmátturgur gagnvart veðurguðunum, ég sem var reyndar búin að panta stillu og heiskýran himinn en sú pöntum hlýtur að hafa týnst í kerfinu, en ég spyr þá bara hver pantaði þetta veður???
Ég er ekki búin að fara til Reykjavíkur núna í dágóðan tíma og er ekki frá því að ég sé komin með smá fráhvarfs einkenni. ég til dæmis keyrði 3 daga í röð í Borgarnes og tékkaði á loftinu í dekkjunum í öll skiptin.
Svo er ég búin að skoða mikið hvað bíóhúsin bjóða uppá þessa dagana vitandi það að hér er ekkert bíó.
Það er nú samt alltaf nóg að gera og lítil hætta á því að manni leiðist, í dag t.d. var paintbal keppni við Bifrestinga sem ég varð að neita mér um vegna þess að ég var búin að taka daginn frá fyrir okkur stelpurnar.
Það var konukvöld seinasta föstudag, með strippi og öllu tilheyrandi mjög gaman að því, það voru sem sagt 3 strákar í skólanum sem eru að safna sér fyrir útskriftarferðinni og völdu þessa leið kvennfólkinu til mikillar gleði.
Í næstu viku er '85 ball sem að umhverfisskipulagið á 2 ári sem sagt bekkurinn minn stendur fyrir og það er líka til styrktar námsferð sem við förum næsta sumar, líklegast til Ítalíu.
Í næstu viku á eftir það er svo karókí keppni sem Lista- og menningarklúbburinn stendur fyrir þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Ég er einmitt formaður Lista-og menningarklúbbsins.
Á Sunnudaginn eru KampKnox með útgáfu tónleika á Gauknum og ég ásamt Hlyn sjáum um skreytingar á salnum og þá effekta það snertir.
Ha skóli hvað er það, ég get svo svarið það að námið er algerlega að rufla skólagönguna hjá mér það veldur vanrækslu á félagslífinu og ýmislegt verður að sitja á hakanum sem annars yrði iðkað af meiri krafti eins og til dæmis bandy, það er ekki búið að ganga nógu vel að mæta í það uppá síðkastið.
Nú styttist óðum í það að jólin komi og þá er ég að fara til Suður-Ameríku get varla beðið er strax farin að undirbúa bólusetningar og þess háttar sem þarf að vera á hreinu.
Ég var að byrja í nýjum áfanga í þessari viku sem kallast tölvu studd hönnun það er alveg einstaklega skemmtilegt og furða ég mig á því að við skildum ekki vera búin að læra þetta fyrir löngu.
Í gær fékk ég þetta líka dýrindis kryddbrauð um klukkan half tvö um nóttina ágætis kvöld kaffi fyrir svefninn. En við vorum einmitt að undirbúa okkur fyrir tónleikana á sunnudaginn ekki á morgun heldur hinn.
Á fimmtufdaginn kom blóðbíllinn í von um að við værum nú gæða blóð og myndum gefa blóð. Við vorum held ég 42 sem mættum á Hvanneyri en aðeins 37 á Bifröst smá metingur í gangi. He he
Jæja nú ætli þetta sé ekki vað verða nóg, ég gæti sjlafsagt haldið áfram en æskilegt væri nú að fólk kæmist yfir lesturinn á einum degi. Ætli ég sé ekki búin að bæta upp fyrir bloggleysið undanfarið.
Hafið í huga að “betra er að kveikja á kerti en bölva myrkrnu“ Kínverkst spakmæli Ég lenti einmitt í því um daginn að það varð rafmagnslaust hjá okkur October 09 hhmmmJæja hvað á það að þýða að vanrækja bloggið mitt svona. En hér er ég í von um að geta bætt ráð mitt. Já hvað hefur drifið á daga mína uppá síðkastið? Það er góð spurning, ég fór í bæinn í gær og kom aftur í dag. Ég er að fara að tala við kennslustjórann á morgun til að komast að því hvenær skólinn fer í jólafrí svo ég geti áttað mig á því hvaða daga ég á að panta flugmiða til Argentínu. Ég fæ alveg fiðring í magan bara við tilhugsunina það styttist óðum í að ég komi Árný mín
ég var að borða hálfa svona ömmu pizzu á móti Önnu Lóu og núna er ég algerlega afvelta.
Ég þvoði á mér hárið og setti næringu í það og fólk hélt að ég hefði slétt á mér hárið, gaman að því
Brjálað að gera í skólanum, mig langar í stígvél.
Mamma sagði að það væri hagstæðar 1 fyrir 2 ferðir til Prag þessa dagana, skil ekki hverning það getur verið hagstætt?
Það er orðið svo kallt hérna hérna á klakanum að puttarnir stifna og nebbinn roðnar.
Ég er komin með heima númmer, en vantar samt símann þannig að ekkert vera að hringja í mig fyrr en við erum búin að redda því
ok bæ September 22 SpennufallJæja nú er ég farin að sjá fyrir endan á þessari endaleysu í náminu ef það finnst endir. Pressan búin að minnka og ég er farin að geta hugsað skyrt aftur. Vikan er búin að vera ágæt, mamma er farin til útlanda hún var einmitt að hringja í mig í þessu. Er að fara að gæða sér á grænu pasta og brokkólíi til að viðhalda græna þemanu þar sem hótelherbergið þeirra er víst svona líka ferlega ljótt grænt. Mér var boðið í kjötsúpu í gær en fékk svo bara eitthvað túnfisk jukk sem reyndar bragðaðist ágætlega þó að útlitið væri minna fyrir augað, ég þorði ekki að mynnast á það þá en þetta var soldið eins og það væri búið að melta þetta einu sinni. Í var í prófi í dag, og ég veit ekki hvort að mér hafi gengið neitt allt of vel, en það kemur allt í ljós á morgun. Munið bara að það er aldrei rangt að gera rétt.
Jæja ég nenni ekki að segja ykkur meira frá lífi mínu.
Hvert takmark er nákvæmlega þess virði og erfiðið sem þarf að leggja á sig til að ná því. Bara svona ef þið skylduð vera að velta því fyrir ykkur. |
|
|||||||||||||||||||||||
|
|